Slippurinn Akureyri ehf með stórt verkefni á Selfossi

Á myndinni eru fv. Hinrik Arnar Hjörleifsson-Húsasmiðjunni, Kristján Heiðar Kristjánsson - Slippnum …
Á myndinni eru fv. Hinrik Arnar Hjörleifsson-Húsasmiðjunni, Kristján Heiðar Kristjánsson - Slippnum Akureyri og Árni Stefánsson - Húsasmiðjunni Mynd Slippurinn

Slippurinn Akureyri ehf skrifaði þann 16.nóvember undir verksamning um reisingu stálgrindar og uppsetningu samlokueininga nýrrar 5000fm verslunar Húsasmiðjunnar á Selfossi. Verkið verður að fullu unnið af starfsmönnum Slippsins.  

Fyrirtækið hefur í síauknum mæli verið að hasla sér völl á þessu sviði og nægir þar að nefna aðkomu starfsmanna við byggingu Húsasmiðjunnar við Freyjunes á Akureyri sem og verslunar Ellingsen á Granda í Reykjavik.

 

 

 

 

 


Athugasemdir

Nýjast