01. desember, 2009 - 11:08
Fréttir
Félagslegir trúnaðarmenn Einingar-Iðju sem starfa í fiskvinnslu á Eyjafjarðarsvæðinu, hafa sent frá ályktun, þar sem skorað
er á stjórnvöld að auka kvóta nú þegar. Ljóst sé að mörg fyrirtæki munu loka í lengri tíma ef ekkert verði
að gert og setji það störf fiskvinnslufólks í hættu. Óöryggi starfsfólks í undirstöðuatvinnugrein
þjóðarinnar sé ekki forsvaranleg í því ástandi sem nú er.
Fundurinn hvetur til þess að sú umræða sem er í þjóðfélaginu um sjávarútvegsmál verði á faglegum
nótum, ekki handahófskennd, því á bakvið útveginn er starfsfólk og þeirra lífsafkoma.