Skólanefnd tryggir fjármagn vegna launa og ferða í skólabúðir

Skólanefnd Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum í vikunni að mæta vilja foreldra og nemenda og tryggja fjármagn vegna launa og ferða í skólabúðir fyrir nemendur í 7. bekkjum grunnskólanna á hverju ári. Á fundi í desember sl. var tekið fyrir erindi frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem kynntur var úrskurður ráðuneytisins um vettvangsferðir.  

Þá samþykkti skólanefnd að vísa því til skólaráða grunnskólanna til umsagnar hvort grunnskólarnir eigi að standa undir þeim kostnaði sem þeim ber að standa undir vegna ferða nemenda í 7. bekk í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði eða hvort fella eigi þessar ferðir alfarið niður með hliðsjón af fyrirliggjandi úrskurði. Ef samþykkt er að fara í ferðina verða skólaráðin að koma fram með tillögu um hvar fjármagn verði tekið til þess.
Fyrir fund skólanefndar 15. mars sl. voru lagðar umsagnir frá skólaráðum allra grunnskólanna. Skólanefnd fól fræðslustjóra að bera málið undir skólastjóra grunnskólanna áður en endanleg ákvöðrun yrði tekin. Málið var rætt á fundi skólastjóra 16. mars sl. og var samþykkt þar að eðlilegt væri að sveitarfélagið tryggði greiðslur vegna ferða og launa kennara. Voru þeir sammála því að halda þessum ferðum áfram á þeim grundvelli.

Nýjast