Hjörtur Valsson skipstjóri í brúnni á Margréti EA/myndir samherji.is
Brúin í uppsjávarskipi Samherja, Margréti EA 710 hefur tekið miklum breytingum á skömmum tíma. Svokölluð skjáveggjastýring hefur verið innleidd, sem gerir það að verkum að skipstjórinn getur stjórnað og fylgst með hvaða tæki sem er á stórum sjónvarpsskjáum. Hjörtur Valsson skipstjóri segir að ótrúlega vel hafi gengið að setja upp skjáveggjastýringuna. Frá þessu segir á heimasíðu Samherja.
Öllu stjórnað með einni mús í stað tíu
„Með þessu kerfi er hægt að draga yfir á skjáina öll þau tæki sem verið er að vinna með hverju sinni, hvort sem við erum á veiðum eða siglingu. Í gamla kerfinu vorum við með um tíu tölvumýs en núna er öllu stjórnað með einni mús, sem er mikill kostur. Myndirnar eru auk þess mun skýrari en á gömlu tækjunum, enda voru þau komin nokkuð til ára sinna. Allar skipanir í kerfinu eru því mun auðveldari og svo munar miklu að geta sett upp mismunandi sviðsmyndir og haft alla þætti svo að segja á sama staðnum. Allt þetta gerir vinnuaðstöðuna þægilegri og öruggari,“ segir Hjörtur.
Margrét EA 710 er fimmtán ára gamalt skip og segir Hjörtur að eðli málsins samkvæmt hafi verið kominn tími á uppfærslu, þótt eldri búnaðurinn hafi vissulega þjónað sínum tilgangi með miklum ágætum.
Kylfingar á Akureyri geta nú heldur betur tekið gleði sína því stefnt er að þvi að opna Jaðarsvöll n.k þriðjudag samkvæmt þvi sem segir á heimasíðu Golfklúbbs Akureyrar.
Frá þessu segir í tilkynningu frá Samkaupum en þar sem kemur fram að s.l. mánuði hafi Samkaup hf. og Skel fjárfestingarfélag rætt um kosti og galla hugsanlegan samruna fyrirtækjanna.
Í dag, 15. maí, eru liðin 25 ár síðan formlega var gengið frá samruna Verkalýðsfélagsins Einingar og Iðju, félags verksmiðjufólks á Akureyri. Þótt þetta sameinaða félag eigi sér þannig séð ekki langa sögu stendur það á gömlum merg því félögin eiga sér hvort um sig langa og merka sögu í baráttu verkafólks fyrir réttindum sínum. Sögu Iðju má rekja allt aftur til ársins 1936 og er stofndagur félagsins talinn 29. mars það ár. Verkalýðsfélagið Eining varð til 10. febrúar 1963 með sameiningu Verkakvennafélagsins Einingar og Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar. Rætur Einingar ná þó mun lengra aftur og má segja að fyrsta fræinu hafi verið sáð árið 1894 þegar Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar, hið eldra, var stofnað.
Andressa Andrade E. Andrade, Celimar Yerlin Gamboa Maturet, Feiruz Nasser Morabito, Haysmar Ledosvkaya Rangel Blanco og Fiora Alessa Pacini Barragán eru í hópi nemenda af erlendum uppruna sem hafa stundað nám í VMA í vetur, m.a. lagt stund á nám í íslensku sem öðru máli.
Knattspyrnudeild KA var í dag dæmd í Héraðsdómi Norðurlands eystra til að greiða fyrrum þjálfara sínum 8,8 milljónir króna auk dráttarvaxta frá 5 nóvember 2023 vegna ágreinings aðila um túlkun á bónusgreiðslum til handa þjálfarans. KA er einning gert að greiða málskostnað þjálfarans fyrrverandi. Aðspurður sagði Hjörvar Maronsson formaður knd KA að verið væri að fara yfir dóminn og vildi að öðru leyti ekki tjá sig um næstu skref.
Vikan fór af stað með brakandi blíðu á Húsavík og við það vaknaði ferðaþjónustan til lífsins en þrátt fyrir áskoranir sem blasa við vegna jarðhræringa á Reykjanesi, verðbólgu og hárra vaxta er jákvæðni og bjartsýn ríkjandi í greininni.
Það má búast við lífi og fjöri í Háskólanum á Akureyri í næstu viku þegar Sjónaukinn, árleg ráðstefna Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs HA fer fram dagana 15. og 16. maí. Ráðstefnan hefst klukkan 9 báða dagana og fer fram bæði á íslensku og ensku. Öll eru velkomin til þess að taka þátt á staðnum eða í streymi. Venju samkvæmt er dagskráin metnaðarfull og fjölbreytt með fjölda málstofa auk pallborðsumræðna sem endurspegla þema ráðstefnunnar í ár sem er Nýsköpun: Tækifæri og áskoranir.
Athugasemdir