Skíðavertíðin byrjar vel

Fyrstu gestir vetrarins bíða eftir að fara upp með Fjarkanum. Frá vinstri: Tómas, Stefán, Agata og F…
Fyrstu gestir vetrarins bíða eftir að fara upp með Fjarkanum. Frá vinstri: Tómas, Stefán, Agata og Fríða. Mynd/Akureyri.is

Fyrsti skíðadagurinn í Hlíðarfjalli var á sunnudaginn var þann 3. desember þar sem hátt í 300 manns renndu sér í góðu færi, er segir á vef Akureyrarbæjar. Næstu vikur verður opið frá fimmtudegi til sunnudags. Lokað verður á aðfangadag en opnað aftur á jóladag og eftir það opið daglega ef aðstæður leyfa.

Sala vetrarkorta hefur gengið mjög vel og snjóframleiðsla er hafin en hefur verið ofurlítið brokkgeng því það þarf 4 gráðu frost til að vélarnar geti breytt vatni í snjó.

"Það er hörkugaddur í kortunum og þá verða snjóbyssurnar látnar ganga viðstöðulaust," segir á vef Akureyrarbæjar. 

Nýjast