Skemmdarverk unnin á golfvellinum á Akureyri

Skemmdaverk voru unnin á tækjum við vélarskemmu á golfvellinum að Jaðri á Akureyri í nótt. Einnig var spólað og spænt á nýrri flöt en tjónið hleypur á hundruðum þúsunda, segir Steindór Ragnarsson, vallarstjóri.  

Skemmdarvargarnir keyrðu svo um svæðið og unnu skemmdarverk á nýrri flöt sem til stendur að opna seinni part sumars. Einnig reyndu skemmdarvargarnir að stela bensíni með því að tengja rafmagnsgeymi úr dráttarvél við dæluna, það tókst ekki. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Nýjast