Fyrsta tölublað Skarps á nýju ári kemur út í dag. Að venju er ítarlegan fréttaannál nýliðins árs að finna í blaðinu. Greint er frá kjöri á Íþróttamönnum Völsungs í hinum ýmsu greinum. Áramótapistill sveitarstjóra Þingeyjarsveitar er í blaðinu. Og við sögu koma einnig fyrirhugaðar framkvæmdir í Mývatnssveit, rausnarleg gjöf heiðurshjóna til Sjúkraþjálfunar Húsavíkur, þrettándagleði, Hvalasafnið, bjartsýnn dugnaðarforkur, bændadeild, kaldur sundlaugarpottur og fleira.
Og fastir liðir eru eins og venjulega. JS