Eik fasteignafélag hefur óskað eftir álits skipulags- og umhverfisnefndar Hörgársveitar á beiðni félagsins um breytingu á aðal- og deiliskipulagi Lónsbakka fyrir lóðirnar Lónsbakka og Dvergastein lóð.
Umræddar lóðir eru verslunar- og þjónustulóðir í gildandi deiliskipulagi en óskað er eftir því að fá að breyta þeim í iðnaðar- og athafnasvæði.
Sveitarstjórn samþykkti að skilgreiningu lóðanna verði breytt í athafnasvæði í yfirstandandi endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar.