Sjúkraliðar mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði í heilbrigðisþjónustu

Á aðalfundi deildar sjúkraliða á Norðurlandi eystra um helgina var samþykkt ályktun, þar sem fram kemur að sjúkraliðar á Norðurlandi eystra mótmæla harðlega niðurskurði sem fyrirhugaður er með fjárlögum 2011 sem mun koma illa niður á heilbrigðisgeiranum. Svo mikill niðurskurður bitni á þeim sem minna mega sín og þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda.  

Niðurskurðurinn getur einnig sett öryggi starfsfólks í hættu með ófyrirséðum afleiðingum. Dýrmæt færni, þekking og reynsla getur tapast við það niðurrif sem sparnaðurinn kemur til með að hafa á landsbyggðina. Allt stefnir í lokun deilda eða stofnanna ef fram heldur sem horfir. Sjúkraliðar hvetja stjórnvöld til að endurskoða sparnaðaráfrom sín, með það fyrir augum, að svo harkalegar aðgerðir lendi ekki á þeim sem síst skyldi, segir ennfremur í ályktuninni.

Nýjast