05. júní, 2008 - 13:45
Fréttir
Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur stýrihóps um rekstrarform menningarhússins Hofs.
Tillagan gerir ráð fyrir því að sjálfseignarstofnun sé það rekstrarform sem best sé til þess fallið að halda utan um og
þróa starfsemi hússins á næstu árum. Oddur Helgi Halldórsson óskaði bókað að hann væri ósammála
þessu rekstrarformi og telur að Akureyrarbær eigi að reka húsið.