Sjálfkjörið í stjórn Einingar-Iðju

Engar tillögur eða listar bárust um mótframboð gegn núverandi stjórn stéttarfélagsins Einingar-Iðju á Akureyri og verður hún því lýst sjálfkjörin fyrir starfsárið 2008-2009 á aðalfundi félagsins sem haldinn verður þann 22. apríl nk. Björn Snæbjörnsson verður því áfram formaður, Matthildur Sigurjónsdóttir verður áfram varaformaður og Halldóra H. Höskuldsdóttir verður áfram ritari stjórnar félagsins. Skilafresti á listum eða tillögum um menn í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2008-2009 lauk á hádegi í dag, mánudaginn 7. apríl. Þetta kemur fram á vef félagsins.

Nýjast