Sigurður Arnarson veitt Hvatningarverðlaun skógræktar í dag

Sigurður Arnarson tók við hvatngingarverðlaununum úr hendi Ragnhildar Freysteinsdóttur    Mynd Skógr…
Sigurður Arnarson tók við hvatngingarverðlaununum úr hendi Ragnhildar Freysteinsdóttur Mynd Skógræktarfélagið
Hvatningarverðlaun skógræktar voru veitt í fyrsta skipti í dag á fagráðstefnu skógræktar í Hofi, sem er við hæfi á alþjóðlegum degi skóga.
Pistlahöfundurinn knái og stjórnarmaður Skógræktfélags Eyfirðinga, Sigurður Arnarson, hlaut hvatningarverðlaunin fyrir sín fróðlegu og skemmtilegu skrif um skóg- og trjárækt á vef Skógræktarfélagsins.
 
Á vef félagsins sem segir frá þessu er Sigurði óskað til hamingju  og skal tekið undir  þær  hamingjuóskir hér. 

Athugasemdir

Nýjast