Síðustu sýningadagar Allir krakkar, allir krakkar – líf og leikir barna

Síðustu sýningadagar sýningar Minjasafnins „Allir krakkar, allir krakkar... líf og leikir barna"  eru núna um páskana. Á henni gefst gestum safnins kostur á því að dusta rykið af gömlum minningum og deila með sér upplifun æskuáranna til afkomenda sinna. Sýningin sem tekur á völdum þáttum í lífi barna byggist á munum, ljósmyndum og minningabrotum.  

Saman skapa þessir þættir skemmtilegan ramma sem hefur frá opnun hennar dregið upp mismunandi myndir í huga þeirra gesta sem komið hafa á sýninguna og hafa þær ýtt undir samtöl kynslóða á milli. Stór sólkskinsdagur í lífi akureyskra barna er öskudagurinn. Örsýningin „Allir hlæja á öskudaginn" hefur því verið tvinnuð saman við fyrrnefnda sýningu. Þar má sjá heimagerða öskudagsbúninga sem ýmist hafa verið lánaðir á sýninguna eða eru úr fórum safnsins. Þarna má sjá öskupoka frá því snemma á síðustu öld, tunnukóngsmerki og ýmsa gripi sem notaðir voru í öskudagsliðunum.

Minjasafnið á Akureyri er opið á skírdag, föstudaginn langa, laugardaginn fyrir páska, páskadag og annan í páskum frá kl 14-17.

Nýjast