Sextán hugmyndir bárust um nafn á sameinað sveitarfélag

Alls bárust 16 hugmyndir um nafn á sameinað sveitarfélag Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar. Þær eru, raðað í stafrófsröð: Arnarbyggð, Eyjafjarðarbyggð, Gásabyggð, Gáseyrarbyggð, Hnjúkabyggð, Hraunsbyggð, Hörgárbyggð, Hörgárhreppur, Hörgársveit, Hörgárþing, Möðruvallabyggð, Möðruvallahreppur, Möðruvallasveit, Smárabyggð, Þelamerkurbyggð og Öxnadalsbyggð.  

Fimm þessara hugmynda að nafni voru sendar örnefndanefnd til umsagnar, sbr. 4. gr. sveitarstjórnarlaga, þ.e. Hörgárbyggð, Hörgárhreppur, Hörgársveit, Möðruvallahreppur, Möðruvallasveit.

Örnefnanefndin mælir með öllum nöfnunum. Næst gerist það að gerð verður könnun á viðhorfi íbúanna til þessara fimm nafnhugmynda samhliða sveitarstjórnarkosningunum 29. maí nk. Sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags tekur síðan endanlega ákvörðun um nafn sveitarfélagsins. Þetta kemur fram á vef Hörgárbyggðar.

Nýjast