Sex umsækjendur um stöðu rektors við Háskólann á Akureyri

Alls bárust sex umsóknir um stöðu  rektors við Háskólann á Akureyri en umsóknarfrestur rann út í gær. Á meðal umsækjenda eru tveir starfsmenn skólans, þeir Guðmundur Heiðar Frímannsson, prófessor í heimspeki og Ingi Rúnar Eðvarðsson, prófessor í stjórnun. Menntamálaráðherra skipar rektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs.    

Aðrir umsækjendur eru: Bjarki Jóhannesson, sviðsstjóri skipulags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðar, Ívar Jónsson, forstöðumaður þjóðdeildar Landsbókasafns Íslands-Háskólabókasafns, Stefán B. Sigurðsson, prófessor og forseti læknadeildar Háskóla Íslands og Zhanna Suprun, verkfræðingur

Háskólaráð tilnefnir tvo menn í nefnd til að meta hæfni umsækjenda og skal annar  þeirra vera formaður en menntamálaráðuneytið tilnefnir einn. Hæfni umsækjenda um embætti rektors skal metin í ljósi heildarmats, með tilliti til vísinda- og útgáfustarfa, ferils sem háskólakennari eða í öðrum störfum, rekstrar og stjórnunarreynslu og með tilliti til þess hversu menntun og reynsla viðkomandi muni nýtast í starf rektors.

Nýjast