08. janúar, 2010 - 21:08
Fréttir
Þór tapaði gegn KFÍ á heimavelli með sex stiga mun, 68:74, er liðin mættust í kvöld í íþróttahúsi
Síðuskóla í 1. deild karla í körfubolta. Þór situr því áfram í þriðja neðsta sæti
deildarinnar með fjögur stig en KFÍ er hinsvegar komið í toppsætið eftir sigurinn með 18 stig. Óðinn Ásgeirsson var
stigahæstur í liði Þórs með 22 stig og þeir Bjarni Árnason, Wesley Hsu og Elvar Sigurjónsson komu næstir með 8 stig hver. Hjá
KFÍ var Craig Schoen stigahæstur með 28 stig.