19. maí, 2010 - 23:46
Fréttir
Valnefnd Glerárprestakalls ákvað á fundi sínum í gær að leggja til að sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir verði skipuð prestur
í Glerárprestakalli. Embættið veitist frá 1. júní næstkomandi. Fjórir umsækjendur voru um embættið.
Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipuðu níu fulltrúar Glerárprestakalls
ásamt prófasti Eyjafjarðarprófastsdæmis.