Séra Arna Ýrr valin prestur í Glerárprestakalli

Valnefnd Glerárprestakalls ákvað á fundi sínum í gær að leggja til að sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir verði skipuð prestur í Glerárprestakalli. Embættið veitist frá 1. júní næstkomandi. Fjórir umsækjendur voru um embættið.  

Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipuðu níu fulltrúar Glerárprestakalls ásamt prófasti Eyjafjarðarprófastsdæmis.

Nýjast