Sauðfjárslátrun hafin hjá Norðlenska á Húsavík

Norðlenska bárust ríflega 78.380 sláturfjárloforð að þessu sinni en sauðfjárslátrun hófst á Húsavík sl fimmtudag. Þetta eru 1.500 fleiri sláturfjárloforð en bárust Norðlenska á síðasta ári, að sögn Sigmundar Hreiðarssonar vinnslustjóra á Húsavík.  

"Hér er allt orðið klárt og sláturhúsið fullmannað. Bændur fara þó heldur seinna í göngur í ár og það gerir okkur aðeins erfitt fyrir í byrjun sláturtíðar. Það þýðir bara að þrýstingurinn verður meiri þegar fer að nálgast lokin en slátrun lýkur 23. október," sagði Sigmundur.  Til að byrja með verður slátrað um 1200-1400 fjár á dag en um 2000 þegar allt er komið í fullan gang.

Nýjast