02. október, 2009 - 10:14
Fréttir
Sýning á myndverkum eftir Samúel Jóhannsson var opnuð í Gallerí BOXi á Akureyri nýlega og stendur hún til 18. október.
Sýningin er opin laugardaga og sunnudaga kl. 14:00 - 17:00. Samúel Jóhannsson (sajóh) er fæddur 29. ágúst 1946 á Akureyri. Hann vinnur
myndverk sín með akríllitum, tússbleki, járni og lakki.
Þetta er 24. einkasýning Samúels en auk þess hefur hann tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hér heima og erlendis.
Samúel sótti nokkur námskeið á unglingsárum, að öðru leyti er hann sjálfmenntaður og hefur sinnt myndlistinni stöðugt
frá 1980.