Bankinn mun opna í dag, 2. apríl og í tilefni þess verður blásið til opnunarveislu þrisvar sinnum. Fyrsta hátíðin verður í dag kl.18.30, næsta á morgun 3. apríl á sama tíma og sú síðasta 11. apríl kl. 19.30. Ástæða þess er gríðarleg eftirspurn en einnig vilji bankans til að tengjast fólkinu á starfsvæði sínu. Þess vegna er miðaverði á opnunarhátíðinni stillt hóf og kostar miðinn aðeins 1.500 kr.
Búið er að ganga frá æðisgenginni dagskrá. Helst ber að nefna að Aðalsteinn Bergdal sér um að halda uppi stuðinu, bankastjórinn sýnir á sér nýjar hliðar, Pétur Pétursson og Hjálmar Freysteins hagyrðingar stíga á stokk, kórar á norðausturlandi sameinast í stórsöng, Idolstjarna tekur lagið og Ungfrú Norðurland lætur sjá sig. Þess má geta að á annað hundrað sjálfboðaliðar koma að þessari sýningu og engin þiggur laun fyrir framlag sitt. Miðasalan er staðsett í útibúi Valhalla á Glerártorgi. Einnig er hægt að panta miða í síma: 848-0430 eða kaupa miða á http://www.midi.is/. Þeir sem fljúga hinu æðisgengna flugfélagi Air Iceland á tímabilinu 1-11. apríl fá tvo fyrir einn á opnunarhátíðirnar.