24. mars, 2010 - 18:52
Fréttir
Samherji hf. hefur boðað til nokkurra funda í Eyjafirði, þar sem farið verður yfir atvinnumál og starfssemi Samherja kynnt. Fyrsti fundurinn verður haldinn
á Hótel KEA á Akureyri í fyrramálið, fimmtudagsmorgun 25. mars kl. 8.15. Annað kvöld verður svo annar fundur haldinn í
Menningarhúsinu Bergi á Dalvík kl. 20.00.
Á þessum fundum verður starfsemi Samherja á Eyjafjarðarsvæðinu kynnt. Frummælandi er Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.
Að lokinni framsögu er opið fyrir spurningar úr sal.