01. desember, 2009 - 23:24
Fréttir
Félagsfundur Samfylkingarinnar á Akureyri ákvað í kvöld að haldið verði opið rafrænt prófkjör þann 30. janúar
2010 um efstu fimm sætin á lista flokkins næsta vor. Kosin var prófkjörsstórn sem falið var að fullmóta og ganga frá reglum
prófkjörsins í samræmi við niðurstöðu félagsfundar og sjá um framkvæmd þess.
Auk þess var kosin uppstillingarnefnd sem ætlað er það hlutverk að stilla upp í sæti 6 - 22 að loknu prófkjöri.