Saltkjöt og baunir, kannski ekki á túkall en alltaf vel þess virði.

Sigmundur Hreiðarsson framleiðslustjóri Kjarnafæðis Norðlenska á Húsavik
Sigmundur Hreiðarsson framleiðslustjóri Kjarnafæðis Norðlenska á Húsavik

Í dag er Sprengidagur sem er seinasti dagur fyrir lönguföstu sem hefst á morgun Öskudag.

Á heimasíðu sem heitir  www.islensktalmanak.is  eru þessar upplysingar að finna um þennan merka dag.

 ,,Sprengidagur er þriðjudagurinn á milli Bolludags á mánudegi og Öskudags á miðvikudegi. Ásamt sunnudeginum og Bolludeginum kallast þeir þrír Föstuinngangur fyrir Lönguföstu sem hefst á Öskudag í 7. viku fyrir Páska.

Sprengidag getur borið upp á 3. febrúar til 9. mars, allt eftir því hvenær páskarnir eru. Sprengidagur er því upprunalega kristin hátíðisdagur tengdur Páskum þótt ekkert sé eftir af neinu trúarlegu tengt þessum degi í dag nema að upp á hvaða mánaðardag hann lendir er reiknað út frá Páskunum.

Kjöt þótti í Kaþólskum sið ekki við hæfi Föstuinngangsdagana tvo fyrir Lönguföstu mánudag og þriðjudag og voru því oft miklar Kjötkveðjuhátíðir sunnudaginn eða sunnudagskvöldið þar á undan. Kjötveislan kann við Siðaskiptin að hafa flust frá sunnudagskvöldinu yfir á þriðjudaginn. Víða um hinn kristna heim er haldið upp á þennan dag og hann oft nefndur Mardi gras sem er Franska og þýðir Feiti þriðjudagur á Ensku Fat Tuesday.“

Vefurinn heyrði í Sigmundi Hreiðarssyni framleiðslustjóra hjá Kjarnafæði Norðlenska i morgun  og  var mikill hugur í honum, tæp 60 tonn takk fyrir takk úr húsi farinn og  verða á borðum landsmanna i hádeginu eða í kvöld.

Það er því viðbúið að þjóðin verði örlítið þyrst þegar líða tekur á daginn nú eða kvöldið eftir atvikum en vonandi fyrst og fremst sæl og södd því eins og fyrr sagði við tekur langafasta!


Athugasemdir

Nýjast