Þar segir ennfremur: Síðasti meirihluti í bæjarstjórn Akureyrar var búinn að samþykkja metnaðarfulla leið í sorpmálum.
Ákveðið hafði verið að fara í þriggja íláta sorpflokkun þar sem mest allt endurvinnanlegt sorp og annar úrgangur yrði
sóttur til íbúa. Allt virtist stefna í að Akureyri myndi skapa sér sess fremst meðal jafninga í flokkun og endurvinnslu sorps.
Á þriðja fundi framkvæmdaráðs frá því að L-listinn náði meirihluta samþykkti meirihluti nefndarmanna að hverfa
frá þessum metnaðarfullu áformum. Meirihluti umhverfisnefndar staðfesti síðan þennan vilja bæjarstjórnarmeirihluta L-listans
síðastliðinn fimmtudag með hjálp Framsóknarflokksins. Þessi breyting er sannarlega ekki gerð með hagsmuni íbúa að
leiðarljósi sem áfram þurfa að greiða um 15.000 kr. á ári fyrir það að geta sinnt endurvinnslu heima hjá sér og sleppt
því að fara á bílnum á grenndarvelli.
Stjórn Sölku hvetur bæjarstjórn til þess að falla frá þessum samþykktum nefndanna. Með þessum samþykktum hafa bæði
umhverfisnefnd og framkvæmdaráð dregið verulega úr fyrri áætlunum um stóraukna flokkun heimilissorps og mikilvægi endurvinnslu.
Stjórn Sölku biður einnig forsvarsmenn L-listans að útskýra hvernig þessi ákvörðun hjálpar L-listanum "að leita leiða til að
gera t.d. sorphirðu og orkunotkun bæjarbúa vistvænni og framsæknari." eins og stendur í stefnuskrá L-listans.