SAk - Tengja fæðingardeild við barnadeild

Tengigangurinn er á þriðju hæð sjúkrahússins og tengir fæðingardeild við barnadeild  Mynd: sak.is
Tengigangurinn er á þriðju hæð sjúkrahússins og tengir fæðingardeild við barnadeild Mynd: sak.is

Vinna við tengigang Sjúkrahússins á Akureyri er vel á veg komin og bjartsýnustu spár segja að hann verði tekinn í notkun í apríl. Þessa dagana er verið að setja upp glerveggi, vinna að lokafrágangi s.s. loftræstingar, raflagnavinnu, dúklagninga, kerfislofts og málningarvinnu. Í framhaldinu koma innréttingar og tæknibúnaður.

Tengigangurinn er á þriðju hæð sjúkrahússins og tengir fæðingardeild við barnadeild, einnig mun tengigangurinn hýsa nýtt og rýmra hermisetur og færist starfsfólk mennta- og vísindadeildar í heild sinni á ganginn segir í á vefsíðu SAk.

Þá verður á ganginum nýtt og glæsilegt fyrirlestrarými, nokkur fundarherbergi ásamt fjölda skrifstofa. „Við erum búin að bíða lengi eftir tengiganginum sem verður þörf viðbót við húsnæði sjúkrahússins. Ég hef áður gert mér væntingar um að ársfundurinn verði haldinn á tengiganginum en nú ætti það að ganga upp,“ segir Hildigunnur Svavarsdóttir.


Athugasemdir

Nýjast