SAk - Sumarmönnun vel á veg komin

Mynd  sak.is
Mynd sak.is

Líkt og hjá öðrum heilbrigðisstofnunum hefur mönnun verið mikil áskorun fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri. Herferðin „Komdu í lið með okkur!” sem miðaði að því að kynna SAk sem eftirsóknarverðan vinnustað og gefa innsýn í störf hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á Sjúkrahúsinu á Akureyri hitt í mark og er sumarmönnun nú vel á veg komin. „Það er ljóst að margir höfðu áhuga á að vinna með okkur í sumar þó svo enn eigi eftir að manna nokkrar stöður. Staðan fyrir sumarið er því nokkuð betri nú en í fyrra,“ segir Kristjana Kristjánsdóttir, deildarstjóri mannauðsdeildar. Stefnt er að því að ganga frá sumarráðningum fyrir lok apríl.

„Það er markmið okkar að gera SAk að framsæknum og eftirsóknarverðum vinnustað. Mannauðurinn er mikilvægur og munu áherslur okkar áfram vera þær að hlúa að starfsfólki og stjórnendum, vinna ötullega að löðun starfsfólks með áframhaldi á herferðinni okkar „Komdu í lið með okkur!”. Það vonandi hjálpar okkur að ná markmiðinu,” segir Kristjana.

Hægt er að fylgjast með auglýstum störfum á Starfatorgi hér.

Einnig eru allar lausar stöður á Facebook-síðunni Störf á Sjúkrahúsinu á Akureyri hér.

Kynningarmyndböndin má svo finna á YouTube rás SAk hér.

Frá þessi segir á heimasíðu SAk.


Athugasemdir

Nýjast