Sama var upp á teningnum í þriðju lotu þar sem SR skoraði þrívegis gegn einu marki SA og unnu að lokum fjögurra marka sigur, 8:4.
Rúnar Freyr Rúnarsson skoraði tvívegis fyrir SA í leiknum og þeir Jón Benedikt Gíslason og Jóhann Leifsson sitt markið hvor. Hjá SR var Egill Þormóðsson markahæstur með þrjú mörk.
Með sigrinum komst SR upp að hlið SA á toppi deildarinnar, sem er orðinn ansi spennandi fyrir lokaleikina, en SR og SA hafa 22 stig en Björninn fylgir fast á eftir með 19 stig. Það stefnir því í æsispennandi keppni milli þessara þriggja liða um sæti í úrslitakeppninni þegar öll liðin eiga þrjá leiki eftir.