Skautafélag Akureyrar vann í kvöld öruggan 7:2 sigur á Birninum er liðin mættust í Egilshöllinni á Íslandsmótinu
í íshokkí karla. SA komst í 5:0 strax í fyrstu lotu leiksins og lagði þar með grunninn að sigrinum. Steinar Grettisson fór mikinn
fyrir SA í kvöld og skoraði þrennu, Orri Blöndal skoraði 2 mörk og þeir Helgi Gunnlaugsson og Ingvar Þór Jónsson sitt
markið hvor. Mörk Bjarnarins skoruðu þeir Úlfar Jón Andrésson og Birgir Hansen.Meistaraflokkur kvenna lék einnig í kvöld gegn
Birninum í Egilshöll og lauk leiknum með sigri Bjarnarsins, 4:3.
Hollvinir Sjúkrahúsins á Akureyri gera það svo sannarlega ekki endasleppt, fyrir nokkrum dögum færðu samtökin lyflækningadeild minnningargjöf og afhentu starfsfólki blómvönd og samúðarkveðju vegna fráfalls Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur, fyrrum deildarstjóra lyflækningadeildar.
Árlegur fundur ungmennaráðs Akureyrarbæjar og bæjarstjórnar fór fram í Ráðhúsinu þriðjudaginn 17. mars. Á fundinum komu fram fjölbreytt sjónarmið og ábendingar um málefni sem varða börn og ungmenni í bænum.
Full ástæða er til að hafa miklar áhyggjur af framtíð áætlunar- og sjúkraflugs um Húsavíkurflugvöll. Eins og kunnugt er liggur áætlunarflug niðri um Húsavíkurflugvöll um þessar mundir sem er miður.
Fjölmennur aðalfundur Eldri borgara á Akureyri (EBAK) fór fram i gær. Á fundinum var borin upp og samþykkt ályktun til þeirra framboða sem bjóða fram lista í komandi bæjarstjórnarkosningum þann 16 maí n.k.
15. mars er alþjóðlegur dagur Long Covid. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) ákveðið að tileinka marsmánuði baráttunni gegn mýtum um Long Covid og skerpa á vitund almennings um þau alvarlegu einkenni sem fylgja þessu ástandi.
Sprettur-Inn, í samstarfi við Skólafélagið Huginn og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, hefur hrundið af stað nýju samfélagsverkefni undir yfirskriftinni „Sneið fyrir samfélagið“.