Sá fyrsti til að vinna Arctic Open tvö ár í röð

Verðlaunahafar á Arctic Open. Helgi Gunnlaugsson er fyrir miðju með vinningsbikarinn. Mynd/Golfklúbb…
Verðlaunahafar á Arctic Open. Helgi Gunnlaugsson er fyrir miðju með vinningsbikarinn. Mynd/Golfklúbbur Akureyrar

Hið alþjóðlega golfmót Arctic Open 2017 fór fram á Jaðarsvelli á Akureyri sl. helgi. Mótið hefur verið árviss viðburður frá árinu 1986 og voru um 220 þáttakendur skráðir til leiks. Arctic Open meistarinn 2017 er Helgi Gunnlaugsson úr GA með 71 punkt. Helgi vann mótið einnig í fyrra og er sá fyrsti í sögu mótsins til að sigra tvö ár í röð, er fram kemur á vef Golfklúbbs Akureyrar.

 


Athugasemdir

Nýjast