RÚV á Akureyri flytur starfsemi sína í húsnæði HA á Sólborg

Í dag var skrifað undir samstarfssamning milli Ríkisútvarpsins og Háskólans á Akureyri og mun svæðisstöð RÚV á Norðurlandi flytja í húsnæði skólans á Sólborg. Ríkisútvarpið fær húsnæðið afhent 1. október og útsendingar þaðan hefjast 1. desember. Samkvæmt heimildum Vikudags er lítlil hrifning meðal starfsmanna RÚV á Norðurlandi með þessa breytingu, húsnæðið sé lítið og hafi enga stækkunarmöguleika og að með þessu sé ljóst að ekki verði blásið í seglin norðan heiða þótt betur fari að ára í þjóðfélaginu.  

Samkvæmt sömu heimildum Vikudags verður stöðin á Sólborg nær eingöngu fréttastöð og að flutningurinn þangað muni kosta um 35 milljónir króna. Sparnaður af leigu í núverandi húsnæði við Kaupvangsstræti mun vera um 300.000 krónur á mánuði og það muni því taka um áratug að ná til baka því sem á að sparast við flutninginn. Fram kemur á vef RÚV að í samningum sé einnig viljayfirlýsing um nánara samstarf við háskólann en Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV, telur þetta jákvætt skref og sýna vilja til að styrkja svæðisstöðvarnar. Verið sé að snúa vörn í sókn á landsbyggðinni. Samningurinn sé hagkvæmur og húsnæðið henti RÚV mjög vel. Jafnframt sé Ríkistútvarpið með þessu að tengjast frjóu og skemmtilegu umhverfi hjá Háskólanum á Akureyri. Stefán B. Sigurðsson, rektor háskólans, segir einnig á vef RÚV að samstarfið muni styrkja kennslu í fjölmiðlafræði. Semja eigi við Ríkisútvarpið um kennslu og fleira tengt fjölmiðlafræði.

Nýjast