Röng forgangsröðun niðurskurðar hefur alvarlegar afleiðingar fyrir heimilin

„Niðurskurður og sparnaður í íslensku efnahagslífi , þ.a.m. í heilbrigðis-og félagsþjónustu er raunveruleiki sem ekki virðist umflúinn. Röng forgangsröðun niðurskurðar hefur alvarlegar afleiðingar fyrir heimilin í landinu þegar t.d. ummönnun sjúklinga og aldraðra færist þangað í auknum mæli," segir í ályktun formannafundar Kvenfélagasambands Íslands.  

"Fyrirséð er að sú umönnun muni að miklu leyti lenda á herðum kvenna. Það er einnig áhyggjuefni að kostnaðurinn vegna læknisþjónustu og lyfja verði munaður og einungis á færi þeirra efnameiri," segir ennfremur í ályktuninni. Farið er fram á það við ábyrgðaraðila viðkomandi þjónustu að sérstaklega skuli gætt að ofangreindum atriðum við skipulagningu þeirra sparnaðaraðgerða sem  framundan eru.

Nýjast