Rífandi stemning þegar Ísland tryggði sig í milliriðil HM

Leifur Gríms og Elsa Hrönn Reynisdóttir létu sig ekki vanta í stemningunni en Elsa Hrönn er móðir Bj…
Leifur Gríms og Elsa Hrönn Reynisdóttir létu sig ekki vanta í stemningunni en Elsa Hrönn er móðir Bjarka Márs Elíssonar. Mynd: Jón Forberg.

Það er óhætt að fullyrða að sannkallaður handboltavírus hafi hreiðrað um sig í hjörtum Íslendinga en eins og flest okkar vita er íslenska karlalandsliðið í handbolta á HM í Svíþjóð þessi dægrin. 

Ísland atti kappi við lið S-Kóreu í gær og það er engu ýkt með að segja að strákarnir okkar hafi valtað yfir mótherja sína og tryggður sig þar með í milliriðil með tvö stig í farteskinu.  Staðan í hálfleik var 19:13 en lokatölur urðu 38:25, 13 marka sigur.

Jón Forberg, Íslendingur búsettur í Noregi brá sér yfir landamærin til Svíþjóðar og fangaði stemninguna á leiknum enda margverðlaunaður ljósmyndari í Noregi. Hann  bíður lesendum Vikublaðsins til myndaveislu um leið og hann sendir öllum vinum á Akureyri góðar kveðjur en hann flutti utan frá Akureyri árið 1992.

Trymblar

Þjálfarateymið

Berir að ofan

Stemmari

Fleiri myndir má skoða með því að smella HÉR


Athugasemdir

Nýjast