Hún hefur fengist við myndlist síðan 1993, sett upp fjölda einkasýninga í 14 löndum og tekið þátt í samsýningum,
listasmiðjum og Dieter Roth Akademíunni. Aðalheiður hefur starfað við ýmislegt tengt listum og hlotið tvívegis starfslaun frá ríki og
bæ. Var þátttakandi í uppbyggingu Listagilsins á Akureyri og er í stjórn Myndlistafélagsins og Verksmiðjunnar á Hjalteyri. Undanfarin
fjögur ár hefur Aðalheiður búið og starfað í Freyjulundi 601, Akureyri. (adalheidur@freyjulundur.is - freyjulundur.is)
Sýningin er sú þriðja sýning af fimmtíu sem Aðalheiður setur upp víða um heim á næstu fimm árum.
Sýningarnar eru allar undir yfirskriftinni " Réttardagur " og fjalla á fjölbreyttan hátt um þá menningu sem skapast hefur í kringum
íslensku sauðkindina. Hver sýning tekur mið af rýminu sem í boði er og verður öðrum listamönnum eða aðilum sem fjalla um
sauðkindina, boðin þátttaka. Einnig eru bókaðar sýningar á næsta ári í Hollandi, Þýskalandi og
Afríku.
Galleri M3 er sett saman úr einingum sem framleiddar eru af Montana fyrirtækinu og er gjöf Peters J. Lassens forstjóra og
aðaleiganda danska húsgagnafyrirtækisins og Eyjólfs Pálssonar eiganda húsgagnaverslunarinnar Epal til Akureyrarbæjar. Montana einingarnar voru
hannaðar og framleiddar í þeim tilgangi að fá listamenn til að raða þeim saman og skapa með þeim innsetningar og er Ólafur Elíasson
td. einn þeirra sem hefur unnið með einingarnar. Árið 2005 vann Finnur Arnar myndlistarmaður verkið "Stígur" sem sýnt var í versluninni
Epal. Það verk var gefið Akureyrarbæ en síðan ákveðið að setja einingarnar, sem upphaflega voru hluti af verki Finns, saman en leyfa fleiri
listamönnum að vinna inn í þær sín myndlistarverk.
Galleri M3 verður staðsett á Glerártorgi um hríð en rýmið er hinsvegar þess eðlis að auðvelt er að flytja
það milli staða.
Það er mikill heiður fyrir bæinn að þiggja slíka gjöf en þess má geta að Lassen hefur í þrjú ár veitt
verðlaunafé í flokki hönnunar í Íslensku Sjónlistaverðlaununum.