Réttað í Illugastaðarétt í Fnjóskadal í 50 ár

Réttað var í Illugastaðarétt í Fnjóskadal sl. sunnudag en um þessar mundir eru 50 ár frá því að fyrst var réttað þar, haustið 1959. Þegar mest var, upp úr 1970, komu 10-12 þúsund kindur í réttina úr fyrstu göngum en að þessu sinni voru rétt um 2000 kindur í réttinni.  

Gangnamenn héldu af stað á fimmtudagskvöld í síðustu viku og smöluðu á föstudag og laugardag í góðu veðri og komu til réttar á laugardagskvöld. Það var Þórólfur Guðnason í Lundi sem hafði umsjón með byggingu Illugastaðaréttar fyrir hálfri öld.

Nýjast