Rauði krossinn veitir aðstoð og stuðning í Viðjulundi í kjölfar slysins í gær

Fulltrúar úr viðbragðshópi Rauða krossins verða í Viðjulundi 2 á Akureyri í dag, föstudaginn 2. júlí, á milli kl. 14 og 15, til að veita aðstoð og stuðning í kjölfar atburða gærdagsins þegar Hoppukastali tókst á loft með þeim afleiðingum að börn slösuðust og þar af eitt alvarlega.

Einnig er minnt á Hjálparsímann 1717 sem er opinn allan sólarhringinn sem og netspjallið á 1717.is en þar veita sjálfboðaliðar Rauða krossins ráðgjöf og stuðning í nafnleynd og trúnaði.


Athugasemdir

Nýjast