Rannsókn hnífstungumálsins á lokastigi

Rannsókn hnífstungumálsins sem kom upp á Akureyri að morgni laugardagsins 27. október sl. er langt komin og málið að mestu upplýst, að sögn Gunnars Jóhannssonar yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar. Hann sagði að málið fari sína leið í dómskerfinu innan skamms. Lögreglunni barst tilkynning um að maður hefði verið stunginn í heimahúsi á Akureyri umræddan morgun. Þegar lögregla kom á staðinn kom í ljós að tveir aðilar höfðu hlotið stungusár í öxl en þrír aðrir voru með minni áverka. Lögreglan fékk lýsingu á árásarmanninum, sem er tvítugur að aldri, og var hann handtekinn stuttu síðar á heimili sínu grunaður um að hafa veitt hinum slösuðu áverkana. Komið höfðu upp deilur í samkvæmi í heimahúsi sem leiddu til átaka með fyrrgreindum afleiðingum. Hinir slösuðu, sem eru á aldrinum 17-23 ára, voru fluttir á slysadeild Sjúkrahúss Akureyrar til aðhlynningar og einn þurfti að gangast undir aðgerð vegna stungusárs á öxl.

Nýjast