Rakel byrjar gegn Eistum á morgun

Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Þórs/KA, verður í byrjunarliði Íslands sem mætir Eistum á Laugardagsvelli annað kvöld í undankeppni HM 2011. Rakel mun spila á hægri á kanti. Liðið lítur þannig út:

Markvörður
Þóra B. Helgadóttir

Hægri bakvörður
Sif Atladóttir

Vinstri bakvörður
Ólína G. Viðarsdóttir

Miðverðir
Erna B. Sigurðardóttir og Katrín Jónsdóttir (fyrirliði)

Varnartengiliðir
Edda Garðarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir

Sóknartengiliður
Dóra María Lárusdóttir

Hægri kantmaður
Rakel Hönnudóttir

Vinstri kantmaður
Hólmfríður Magnúsdóttir

Miðframherji
Margrét Lára Viðarsdóttir

 

Silvía Rán Sigurðardóttir, Þór/KA, verður á varamannabekk íslenska liðsins. Leikurinn hefst kl. 20:00 annað kvöld og er sýndur beint á RÚV.

Nýjast