Ráðin forvarnarfulltrúi hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra

Silja Rún Reynisdóttir.
Silja Rún Reynisdóttir.

Silja Rún Reynisdóttir hefur verið ráðin sem forvarnarfulltrúi hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Lögreglan greinir frá því á Facebooksíðu sinni að forvarnarfulltrúi hafi ekki verið starfandi hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra um nokkurra ára skeið. „Við skynjum vel þörfina fyrir slíkan starfsmann og höfum fengið ákall frá samfélaginu um að endurvekja þessa starfsemi. Nú hefur verið ákveðið að setja einn lögreglumann í þetta verkefni og hefur Silja Rún Reynisdóttir valist til starfans,“ segir í færslu lögreglunnar.

Silja hefur starfað sem lögreglumaður hjá embættinu síðan árið 2016, hún lauk diplómagráðu í lögreglufræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2018, ásamt því að hafa lokið B.A gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands. Segir lögreglan að forvarnarstarfið sé á byrjunarreit, þótt lögreglan reyni að sinna ýmsum forvörnum meðfram öðrum störfum. Markmiðið nú sé að auka fræðslu og forvarnarstarf þar sem þörf er á, m.a. á ýmsa misnotkun samfélagsmiðla og kynferðisbrot.

„Erfitt getur verið að meta árangur af forvarnarstarfi en við erum þess fullviss að gildi svona vinnu sé mikið fyrir samfélagið. Með góðu forvarnarstarfi verður lögreglan sýnilegri í samfélaginu og tengsl við íbúa aukast. Lögreglan telur mikilvægt að eiga í góðum samskiptum við íbúa og félagasamtök á svæðinu. Við bindum því miklar vonir við þessa vinnu,“ segir lögreglan.

Hægt er að hafa samband við Silju með því að senda tölvupóst á srr01@logreglan.is eða hringa í síma 444-2850.


Athugasemdir

Nýjast