Pósthúsið í miðbæ Akureyrar flytur í Strandgötu

Pósthúsið sem hefur verið til húsa að Skipagötu 10 á Akureyri flytur á morgun föstudaginn 28. ágúst í nýtt húsnæði, í Strandgötu 3. Á nýjum stað er aukið til muna aðgengi og þjónusta við viðskiptavini sem og aðstaða starfsfólks. Í Skipagötunni og í Hafnarstrætinu hafa verið póstafgreiðslur allt frá árinu 1944.  

Í nýja staðnum í Strandgötu verður boðið upp á meira vöruúrval fyrir viðskiptavini, en þar er meðal annars átt við sölu á ýmiskonar vörum eins og skrifstofuvörum, ritföngum, pappír, gjafaumbúðum, geisladiskum, póstkortum og öðru sem mikilvægt er fyrirtækjum, einstaklingum og ferðalöngum. „Samskiptaborð" eru nýjung í þjónustu Póstsins á Akureyri. Þar gefst viðskiptavinum nú tækifæri til að fara á netið, prenta út ýmiss gögn og ljósmyndir, skanna og ljósrita svo eitthvað sé nefnt. Einnig gefst viðskiptavinum kostur á að panta aðra þjónustu fyrirtækisins Samskipta á pósthúsinu. Í tilefni opnunar er gestum og gangandi boðið í kaffi og kökur á morgun föstudag og á laugardag. Opið er á laugardaginn frá kl. 10-14, annars er opið alla virka daga frá kl. 9-18.

Uppbygging nýrrar þjónustu er hluti af áformum Íslandspósts um að efla enn frekar þjónustu Póstsins á landsbyggðinni sem og á höfuðborgarsvæðinu.

Nýjast