Óskað eftir kauptilboði í byggingarrétt hótels á Jaðarsvelli

Fyrirhugað hótel mun rísa innan marka ljósgræna kassans sem sjá má á þessari mynd  Mynd akureyri.is
Fyrirhugað hótel mun rísa innan marka ljósgræna kassans sem sjá má á þessari mynd Mynd akureyri.is

Í dag er auglýst eftir tilboðum í byggingarrétt á hóteli sem áætlað er að rísi á Jaðarsvelli það er Akureyrarbær sem auglýsir lóðina.  Um er að ræða 3000 fm lóð og eins segir í auglýsingu ,,staðsetningin einstök við einn besta golfvöll landsins og útivistarsvæði bæjarins í Naustaborgum og Kjarnaskógi sem bjóða upp á spennandi möguleika árið um kring. Má segja að þetta hótel verði algjör hola í höggi.“

Tilboðum i lóðina á að skila rafrænt gegnum útboðsvef bæjarins og er skilafrestur til 13 mars n.k. klukkan 12 á hádegi.  Tilboð verða svo opnuð í Ráðhúsinu kl 14 sama dag. 


Athugasemdir

Nýjast