Öryggismál hestamanna rædd á ráðstefnu á Akureyri

Landssamband hestamannafélaga heldur ráðstefnu á Akureyri um öryggis- og skipulagsmál hestamanna þann 8. febrúar nk.  Ráðstefnan verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri og hefst klukkan 16.30.  Tilgangur ráðstefnunnar er að fjalla um öryggismál hestamanna í ljósi tíðra slysa á hestamönnum undanfarið og þeirrar staðreyndar að stöðugt þrengir að svæðum hestamanna við þéttbýli sem hefur skapað aukna slysahættu.  Ráðstefnunni  er ætlað að ræða um og skilgreina áhættuþætti í þessu sambandi og hvernig hægt er að vinna að skipulagsmálum hestamanna til framtíðar m.t.t. öryggissjónarmiða.

Nýjast