Óli sækist eftir oddvitasæti VG

Óli Halldórsson býður sig fram til að leiða framboð VG í næstu kosningum í NA kjördæmi. Mynd aðsend
Óli Halldórsson býður sig fram til að leiða framboð VG í næstu kosningum í NA kjördæmi. Mynd aðsend

Óli Hall­dórs­son, sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi í Norð­ur­þingi, lýsti því yfir í gærkvöld að hann muni sækjast  eftir odd­vita­sæt­inu á fram­boðs­lista Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi fyrir næstu alþing­is­kosn­ing­ar. Óli er nú í leyfi frá sveitarstjórnarstörfum út næsta ár.

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis og fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins til­kynnti fyrir skemmstu að hann ætl­aði ekki að bjóða sig fram í næstu þingkosningum en hann hefur leitt flokkinn í kjördæminu frá því að VG bauð fyrst fram árið 1999.  

Óli segir í tilkynningu að undanfarin ár hafi hann tekið þátt í margvíslegu pólitísku starfi, mest í sveitarstjórn Norðurþings þar sem hann hefur setið með hléum síðustu tvö kjörtímabil. Þá hafi hann einnig verið í baklandi flokksins í landsmálapólitíkinni í gegnum tvennar kosningar og setið á þingi sem varamaður. „Í þetta skiptið hef ég ekki hug á varajakkanum. Ég mun bjóða mig fram til þess að vera í forystu VG á mínum heimavelli og leiða framboðið,“ segir Óli í tilkynningunni.

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir, þing­flokks­for­maður VG, hefur verið í öðru sæti á lista flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í und­an­förnum kosn­ingum og setið á þingi frá 2013.

Óli sóttist eftir varaformannsembætti VG á lands­fundi hreyf­ing­ar­innar haustið 2017. Það var hins vegar Edward H. Hui­jbens sem sigraði kosninguna og gegndi emb­ætt­inu þar til Guð­mundur Ingi Guð­brands­son utan­þings­ráð­herra flokks­ins tók við embættinu á síðasta ári.

Kári Gauta­son, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Vinstri grænna greindi einnig frá því í vikunni að hann myndi gefa kost á sér ofarlega á lista VG í kjördæminu í næstu kosningum en Kári kemur frá Vopnafirði.


Athugasemdir

Nýjast