15. desember, 2009 - 14:42
Fréttir
Ökumaður lítils sendibíls slapp með skrekkinn er bíll hans valt á Borgarbraut á Akureyri nú á þriðja tímanum og
hafnaði á hliðinni utan vegar og í öfuga akstursstefnu. Ekki mátti þó miklu muna að bíllinn færi fram af háum kanti.
Ökumaðurinn komst af sjálfsdáðum út úr bílnum og slapp ómeiddur.
Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, var á leið upp Borgarbraut þegar óhappið varð. Mikill ísing er á götum Akureyrar og er
ástæða til að brýna fyrir vegfarendum að fara að öllu með gát.