12. júní, 2009 - 09:05
Fréttir
Um helgina heldur Sundfélagið Óðinn á Akureyri, Bikarkeppni ÍF í sundi í samstarfi við Íþróttasamband fatlaðra.
Þetta er í fyrsta sinn sem mótið er haldið utan höfuðborgarsvæðisins og jafnframt í fyrsta sinn sem Óðinn heldur mót á
landsvísu fyrir fatlaða sundmenn. Óðinn hefur þá sérstöðu meðal íþróttafélaga að innan raða félagsins
æfa og keppa bæði fatlaðir og ófatlaðir.
Á mótið eru skráðir rúmlega 40 keppendur frá fjórum félögum. Bikarkeppnin sjálf er á laugardaginn og hefst keppni
kl. 11 í Sundlaug Akureyrar. Í tengslum við mótið verða einnig opnar æfingabúðir á föstudag og sunnudag í Sundlaug Akureyrar undir
stjórn landsliðsþjálfara Íþróttasambands fatlaðra.
Nánari upplýsingar veitir Jón Heiðar Jónsson, þjálfari hjá Óðni og stjórnarmaður í ÍF, í
síma 895-8684.