20. janúar, 2008 - 11:44
Fréttir
Nýtt merki Akureyrarstofu var kynnt í nýársteiti í Ketilhúsinu í gær og við sama tækifæri var nýr kynningarvefur,
visitakureyri.is opnaður. Akureyrarstofu var komið á laggirnar á vordögum 2007 en hún tók við hlutverki menningarmálanefndar, hlutverki
stjórnsýslunefndar í markaðs- og kynningarmálum og hlutverki bæjarráðs í ferða- og atvinnumálum. Það var Elín
Margrét Hallgrímsdóttir formaður stjórnar Akureyrarstofu sem opnaði nýja kynningarvefinn en merki Akureyrarstofu er eftir Þórhall
Kristjánsson.