Nýr skrifstofustjóri Eyjafjarðarsveitar

Bjarki Ármann Oddsson hefur verið ráðinn sem skrifstofu- og fjármálastjóri Eyjafjarðarsveitar  Mynd …
Bjarki Ármann Oddsson hefur verið ráðinn sem skrifstofu- og fjármálastjóri Eyjafjarðarsveitar Mynd Eyjafjarðarsveit

Bjarki Ármann Oddsson hefur verið ráðinn sem skrifstofu- og fjármálastjóri Eyjafjarðarsveitar og tekur hann við starfinu af Stefáni Árnasyni þann 1.maí næstkomandi.

Bjarki hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og stjórnsýslu sveitarfélaga þar sem hann hefur starfað í sveitarstjórnarmálum síðastliðinn áratug. Hefur hann meðal annars starfað sem íþrótta- og frístundastjóri Fjarðabyggðar, sem forstöðumaður tómstundamála og sem sviðsstjóri og forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar. Bjarki hefur í störfum sínum meðal annars séð um rekstur og starfsmannahald stofnana og málaflokka, haldið utan um stefnumótunarvinnu og fjárhagsáætlanagerð, innleitt breytingar og komið að hagræðingaraðgerðum.

Bjarki hefur menntað sig á sviði opinberrar stjórnsýslu þar sem hann náði sér í meistaragráðu í faginu frá Háskóla Íslands. Þá er Bjarki með BA í samfélags- og hagþróunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Bjarki Ármann býr í Hrafnagilshverfi og er uppalinn í sveitarfélaginu. Hann er giftur Konný Bjargey Benediktsdóttur og eiga þau fjögur börn á leik- og grunnskólaaldri.


Athugasemdir

Nýjast