11. apríl, 2008 - 11:25
Fréttir
Nýr Sæfari fór í sína fyrstu ferð til Grímseyjar frá Dalvík kl. 10.30 í morgun. Hið nýja skip er um 40 m langt og 10 m
breitt og getur flutt 108 farþega og 160 tonn af farmi.
Aðstaða til farþegaflutninga batnar til muna með nýju skipi og er ferjan búin tveimur farþegasölum. Um borð í Sæfara eru m.a.
Kristján Möller samgönguráðherra, fulltrúar Vegagerðarinnar og nokkir þingmenn kjördæmisins. Sæfari var upphaflega
smíðaður árið 1992 en keyptur hingað til lands í desember 2005. Fram fóru umtalsverðar endurbætur á skipinu, bæði í
Hafnarfirði og á Akureyri og er kostnaður við kaup á skipinu, viðgerðir og endurbætur rúmar 530 milljónir króna.