Ólöf Leifsdóttir forstöðumaður PBI segir að mikið sé að gera á vinnustaðnum um þessar mundir, en nú eru starfsmenn í óða önn að útbúa lambamerki fyrir bændur, enda sauðburður á næsta leyti. Áður fór öll áprentun á búfjármerki fram í Noregi, en í kjölfar þess að norska fyrirtækið leigði prentarann flytjast þau störf nú heim. Magnús Kristjánsson rekstarstjóri hjá PBI segir að stefnt sé að því að auka starfsemina í kringum búfjármerkin og horft sé til þess að atvinna í kringum það skapist frá hausti og fram á vor. Auk lambamerkjanna verða þar líka útbúin merki fyrir nautgripi, svín og eins ásetningsmerki í sauðfé. „Það er mjög ánægjulegt að þessi störf hafa nú flust heim, með því sköpum við fleiri störf hér og skörum gjaldeyri," segir Magnús.
Nú starfa 6 manns með einum eða öðrum hætti við framleiðsluna, en á vinnustaðnum starfar fólk með skerta starfsgetu og eins fólk í starfsþjálfun. Stefnt er að því að auka framleiðsluna og jafna út sveiflur í starfsemi tengdri framleiðslu búfjármerkjanna, en með því að framleiða meira magn segja þau Ólöf og Magnús að hægt verði að bjóða hagstæðara verð. Pantanir frá bændum steyma nú inn , en fleiri hafa áttað sig á kostum merkjanna, m.a. grásleppukarlar sem merkja net sín með þeim. Hægt er að panta stórgripa- og ásteningsmerkin á vefsíðunni bufe.is en lambamerkin beint hjá PBI. (pbi@akureyri.is)