Ný starfsemi í húsnæði gamla Oddvitans

Tvær athafnakonur, Dóróthea Jónsdóttir og Jónína Hjaltadóttir, hafa tekið húsnæði við Strandgötu á leigu, þar sem veitingastaðurinn Oddvitinn var rekinn til margra ára. Engin starfsemi hefur þó verið í húsinu um hríð. Að sögn Dórótheu ætla þær stöllur að opna þjónustumiðstöð fyrir skemmtiferðaskip yfir sumartímann en yfir vetrarmánuðina er hugmyndin að vera þar með menningartengda starfsemi og útleigu á þeim tveimur sölum sem eru í húsinu. "Við erum að springa úr hugmyndum og höfum verið að skoða hvernig starfsemi hentar best í húsið." Tveir salir eru í húsinu sem er samtals um 760 fermetrar að stærð og segir Dóróthea að skortur hafi verið á sölum til útleigu í bænum. Hún var í forsvari fyrir handverkshátíðina á Hrafnagili sl. tvö ár og hefur hug á að tengja handverk þjónustumiðstöðinni og einnig kynningu á íslenskum mat og matargerð. Framundan er vinna við málun og frekara viðhald en Dóróthea sagði stefnt að því hefja útleigu á sölum staðarins strax í næsta mánuði.

Nýjast